Erlent

Rússar þurfa ekkert að óttast

Henry Obering
Henry Obering

 Henry A. Obering, yfirmaður flugskeytavarnadeildar Bandaríkjahers, segir að Rússar þurfi ekkert að óttast þótt Bandaríkjamenn komi sér upp kerfi flugskeytavarna í Evrópuríkjum.

Obering sagði á blaðamannafundi í Berlín í gær að kerfið verði eingöngu varnarkerfi, sem ætti einkum að geta komið í veg fyrir árásir frá Íran. Kerfið verði hins vegar ekki nægilega öflugt til að verjast árásum frá Rússlandi.

Rússnesk stjórnvöld hafa harðlega gagnrýnt þessi áform Bandaríkjanna og segja þau ógna Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×