Erlent

Ballet á Grænlandi í fyrsta sinn

Ballett verður dansaður á Grænlandi á morgun í fyrsta sinn svo vitað sé. Það er danshópur konunglega danska leikhússins sem ætlar að kynna Grænlendingum þetta listform og fer svo þaðan til Færeyja.

Talsmaður hópsins segir þetta við hæfi því Grænland sé hluti af danska ríkinu en ballett er afar frábrugðin fornum danssporum Grænlendinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×