Erlent

Fjörutíu ár liðin frá hernámi Ísraels á Vesturbakkanum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Nú eru fjörutíu ár liðin frá hernámi Ísraelsríkis á Vesturbakkanum og Gaza. Að því tilefni hefur Amnesty International hvatt ísraelsk stjórnvöld til að hætta að sölsa undir sig land, að halda íbúum í herkví og ástunda annars konar brot á alþjóðalögum. Samtökin hafa birt nýja skýrslu, Enduring Occupation: Palestinians under siege in the West Bank sem skýrir frá afleiðingum hernáms Ísraelsríkis á landi Palestínumanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty International.

 

 

Amnesty International vilja að alþjóðlegt eftirlitsteymi verði sent á vettvang til að fylgjast með því hvernig báðir aðilar, Ísraelar og Palestínumenn, rækja skyldur sínar við alþjóðalög og sáttmála. „Eftirliti skulu fylgja skuldbindingar til að rannsaka og ákæra, í samræmi við reglur um alþjóðlega lögsögu, alla þá sem fremja stríðsglæpi eða aðra glæpi sem bannaðir eru í alþjóðalögum", segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×