Erlent

Spenna á fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heims

Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims ásamt mökum sínum fyrir sameiginlegan kvöldverð í gær.
Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims ásamt mökum sínum fyrir sameiginlegan kvöldverð í gær. MYND/AP

Aðgerðir í loftlagsmálum, sjálfstæði Kosovo, kjarnorkuáætlun Írana og eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna í Austur-Evrópu eru meðal þeirra mála sem rædda verða á fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heims í dag.

Leiðtogarnir komu til þýska strandbæjarins Heilegendamm í gær og í dag hefjast viðræður þeirra fyrir alvöru. Búast má við töluverðri spennu á fundinum þar sem viðhorf þeirra til helstu mála eru harla ólík.

Þannig eru Rússar andvígir því að Kosovo-hérað fái algjört sjálfstæði og því er talið ólíklegt að samkomulag náist um það á fundinum. Enn fremur má búast við ekki gangi allir sáttir frá borði í umræðum um aðgerðir í loftlagsmálum því ágreiningur er um milli leiðtoga Evrópu og Bandaríkjanna um hversu langt eigi að ganga.

Þannig vill Angela Merkel, kanslari Þýskalands, að iðnríki dragi úr gróðurhúsalofttegundum um helming fyrir árið 2050 og vinni að því að hiti í heiminum hækki ekki meira en um tvær gráður. Þrátt fyrir að George Bush Bandaríkaforseti hafi í gær lýst yfir „mikilli þrá" til að vinna að nýju samkomulagi í loftlagsmálum sem tekur við að Kyoto-bókunini er talið ólíklegt að Bandaríkjamenn samþykki eitthvað í þá veru á þessum fundi.

Auk þessa má búast við að deilur Vesturveldanna og Rússa um eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna í Austur-Evrópu verði fyrirferðamiklar á fundinum í dag. Rússar eru algerlega andvígir kerfinu og hóta að beina kjarnorkuvopnum sínum að Evrópu vegna þess en því hafa leiðtogar Evrópu tekið illa. Búist er við því að Bush og Vladímír Pútín, forseti Rússlands, ræði málið einslega á fundi í dag.

Spennan er ekki síður utan fundarins þar sem fjöldi mótmælenda hefur tekist á við lögreglu undanfarna daga í nágrenni fundarstaðarins. Um 16 þúsund lögreglumenn gæta öryggis á svæðinu en talið er að mótmælendur séu sex þúsund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×