Erlent

Segja CIA halda 39 „draugaföngum“

Flugvélar á vegum CIA sem sagðar eru tengjast fangaflugi hafa lent hér á landi.
Flugvélar á vegum CIA sem sagðar eru tengjast fangaflugi hafa lent hér á landi. MYND/Stöð 2

Hópur mannréttindasamtaka hefur greint frá nöfnum 39 manna sem þau segja að Bandaríkjamenn haldi með ólögmætum hætti í leynifangelsum á vegum bandarísku leyniþjónustunnar.

Listann byggja samtökin upplýsingum frá ríkisstjórnum, fjölmiðlum og fyrrverandi föngum í slíkum fangelsum. Leynifangelsi Bandaríkjamanna komust í hámæli fyrir um tveimur árum og fól Evrópuráðið svissneskum þingmanni að rannsaka áskanir um hvort slík fangelsi væru starfrækt í Evrópu. Sú rannsókn stendur enn.

Mannréttindasamtökin fullyrða að ekkert hafi spurst til mannanna sem um ræðir í mörg ár en í þeirra hópi eru íranskir, írakskir og súdanskir ríkisborgarar. Bandaríkjaforseti viðurkenndi í fyrra að leynifangelsin væru til en engin væri í þeim lengur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×