Erlent

Vill geta lögsótt bullur sem hlaupa inn á knattspyrnuvelli

MYND/AP

Danska knattspyrnusambandið vill fara að fordæmi þess enska og geta kært þá ólátaseggi sem hlaupa inn á knattspyrnuvöllinn.

Eftir því sem segir á vef Jótlandspóstsins er þetta ekki mögulegt samkvæmt dönskum lögum í dag en ensk yfirvöld tóku þetta upp til að vinna gegn bulluskap á enskum knattspyrnuvöllum. Ástæðan fyrir því að dönsk knattspyrnuyfirvöld vilja taka þetta upp nú er atvik á leik Dana og Svía um síðustu helgi þar sem drukkinn áhorfandi réðst að dómaranum. Hafa umsjónarmenn öryggismála á Parken verið harðlega gagnrýndir fyrir atvikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×