Zamora: Þetta ræðst í lokaumferðinni 23. apríl 2007 13:30 Bobby Zamora. MYND/Getty
Framherji West Ham, Bobby Zamora, segir að sjálfstraustið í herbúðum liðsins sé í góðu lagi í augnablikinu og er hann vongóður um að Íslendingaliðið nái að halda sæti sínu í deildinni. Zamora segist sannfærður um að það ráðist ekki fyrr en í lokaumferðinni hvaða lið þurfi að bíta í það súra epli að falla niður í 1. deild. "Ég tel okkur eiga góða möguleika en við þurfum að vinna þá þrjá leiki sem við eigum eftir. Það verður erfitt, en það eru fimm lið sem geta lent í þessum tveimur fallsætum sem eru eftir. Þetta ræðst ekki fyrr en á síðasta degi tímabilsins," segir Zamora. West Ham mætir Wigan í vikunni í leik sem mun koma til með að ráða miklu um framhaldið, en Wigan er aðeins þremur stigum á undan West Ham í stigatöflunni. "Það verður rosalegur leikur en ef við spilum jafn vel og á móti Everton er ég viss um að við náum góðum úrslitum. Liðin í kringum okkur eiga mjög erfiða leiki eftir eins og við, þannig að við eigum góða möguleika," segir Zamora. Enski sóknarmaðurinn hefur farið mikinn í síðustu leikjum West Ham þrátt fyrir að eiga við meiðsli að stríða í hné. Hann bítur hins vegar á jaxlinn og ætlar sér að klára þá leiki sem eftir eru. "Ég finn mikið fyrir þessu og fæ oftar krampa í fótinn. Ég er á bólgueyðandi og verkjastillandi lyfjum sem gera heldur ekki gott, en ég læt mig hafa þetta. Það er ekki svo mikið eftir," segir Zamora.
Enski boltinn Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Fótbolti „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Íslenski boltinn Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír Íslenski boltinn „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Fótbolti Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ Fótbolti Fleiri fréttir Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Sjá meira