Erlent

Sakar Breta og Bandaríkjamenn um áróður

Robert Mugabe.
Robert Mugabe. MYND/AFP

Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, ásakar Bandaríkjamenn og Breta fyrir að reyna skapa ójafnvægi í landinum með hvers konar refsiaðgerðum og áróðri. Þetta kom fram í ræðu forsetans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gær.

Sagði hann ennfremur að Bandaríkjamenn hefðu ekki efni á því að saka aðrar þjóðir um mannréttindarbrot og að hendur þeirra væru ataðar blóði. Áður hafði Bush, Bandaríkjaforseti, sakað stjórnvöld í Zimbabwe um einræðistilburði og hvatti ríki heims til að beita þrýstingi til að auka lýðræði þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×