Máli Kanadamanns vísað frá 5. júní 2007 05:15 Skilgreiningaratriði varð til þess að máli eins fanganna var vísað frá dómi. MYND/AP
Peter Brownback, dómari við einn af herdómstólum Bandríkjahers yfir föngunum, sem eru í haldi í Guantanamo á Kúbu, vísaði í gær frá dómi máli eina Kanadamannsins sem þar er í haldi. Fanginn, sem heitir Omar Khadr, var handtekinn í Afganistan árið 2002, þá aðeins 15 ára gamall, og sakaður um að hafa drepið bandarískan hermann í átökum með því að kasta handsprengju. Brownback dómari sagði málið ekki falla undir lögsögu sérdómstólanna í Guantanamo, vegna þess að Khadr hefur ekki verið úrskurðaður „ólögmætur óvinveittur bardagamaður“. Sérstök úrskurðarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að Khadr væri „óvinveittur bardagamaður“ en samkvæmt bandarískum lögum eiga dómstólarnir í Guantanamo einungis að fjalla um mál „ólöglegra“ bardagamanna úr óvinaliði. Dómarinn útilokaði ekki að mál Khadrs gæti komið fyrir dómara síðar, verði þá búið að breyta skilgreiningunni á því hvers konar fangi Khadr er. Yfirmaður þeirra lögfræðinga, sem sjá um vörn fanganna á Kúbu, sagði í gær að frávísun málsins frá dómi væri afar mikilvæg og gæti haft mikil áhrif, því enginn fanganna þar hefur til þessa verið skilgreindur sem „ólöglegur“ bardagamaður.
Mest lesið Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Innlent „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ Innlent Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Innlent Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Innlent Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Innlent Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Innlent Páll Winkel varð fyrir valinu Innlent Fleiri fréttir Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Sjá meira