Erlent

Nota gervihnattamyndavélar til að fylgjast með Darfur

MYND/AP

Amnesty International í Bandaríkjunum hyggst beita nýstárlegri aðferð við eftirlit með mannréttindabrotum í hinu stríðshrjáða Darfur-héraði í Súdan. Samtökin ætla að nota gervihnattamyndavélar til þess að fylgjast með þróun mála í 12 þorpum sem talin eru í sérstakri hættu.

AP-fréttastofan hefur eftir einum af forsvarsmönnum samtakanna í Bandaríkjunum að með þessari tækni megi fylgjast með hlutum allt niður í hálfan metra að stærð og því verði auðvelt að ná myndum af því ef herir sem njóta stuðnings stjórnvalda sæki að þorpunum.

Amnesty Internatioal reiknar með að geta tengt myndavélarnar við heimasíðu á Netinu, www.eyeondarfur.org, þannig að heimsbyggðin geti fylgst með þróun mála. Ætlunin er að opna síðuna á næstunni.

Alls hafa um 200 þúsund manns látist í tengslum við bardaga uppreisnarmanna í Darfur og arabískra vígasveita sem njóta stuðnings súdanskra stjórnvalda frá árinu 2003 og þá hefur hálf þriðja milljón manna þurft að yfirgefa heimili sín vegna átakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×