Erlent

Þriggja enn saknað eftir lestarslys í Ástralíu

MYND/AP

Björgunarmenn héldu í dag áfram að leita að fórnarlömbum í flaki lestar sem rakst á flutningabíl í Viktoríuríki í Ástralíu í gær. Ellefu hið minnsta létust og yfir 20 manns slösuðust í þessu versta lestarslysi í sögu Viktoríuríkis.

Enn er þriggja manna saknað eftir slysið og er talið ólíklegt að þeir finnist á lífi. Björgunarmenn hafa lýst ástandinu í vettvangi í gær sem algjöru blóðbaði. Skullu lestin og flutningabíllinn saman af svo miklu afli að einn vagnanna nánast klofnaði í tvennt og þá endaði annar utan teinanna.

Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en bæði lögregla og samgönguyfirvöld rannsaka þau.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×