Erlent

Poulsen biður dönsku þjóðina afsökunar á árás

Christian Poulsen og Francesco Totti, landsliðsmaður Ítala, skiptast á skoðunum í viðureign Dana og Ítala í fyrra.
Christian Poulsen og Francesco Totti, landsliðsmaður Ítala, skiptast á skoðunum í viðureign Dana og Ítala í fyrra. MYND/Reuters

Danski knattspyrnumaðurinn Christian Poulsen, sem sló sænskan knattspyrnumann í magann í leik Svía og Dana á Parekn á laugardag, hefur beðið dönsku þjóðina afsökunar á framferði sínu.

Þá segist hann vonast til að ungir og upprennandi knattspyrnumenn taki þetta ekki til fyrirmyndar. Sem kunnugt er var honum aðeins vísað af velli fyrir árásina, en fótboltabulla, sem ruddist inn á völlinn og ætlaði að berja dómarann, var fangelsuð.

Nemandi í Árósum hefur kært ofbeldi Poulsens til lögreglu en þrátt fyrir alla iðran segir Poulsen að Knattspyrnusamband Evrópu sé rétti vettvangurinn til að útkljá málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×