Erlent

Fundur átta helstu iðnríkjaheims hefst í dag

Búist er við fjölmennum mótmælum nærri Heiligendamm vegna fundar átta helstu iðnríkja heims en mótmælendur halda margir til í Reddelich þar sem þessi mynd var tekin
Búist er við fjölmennum mótmælum nærri Heiligendamm vegna fundar átta helstu iðnríkja heims en mótmælendur halda margir til í Reddelich þar sem þessi mynd var tekin MYND/AP

Búast má við að deilur Rússa og Bandaríkjamanna um eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu setji svip sinn á fund leiðtoga átta helstu iðnríkja heims sem hefst í Þýskalandi í dag.

Evrópuríkin Þýskaland, Frakkland, Bretland, Ítalía og Rússland ásamt Japan, Bandaríkjunum og Kanada teljast til átta helstu iðnríkja heims en leiðtogar þeirra hittast árlega. Auk þess sitja áheyrnarfulltrúar þróunarríkja, Kína og nokkurra alþjóðastofnana fundinn sem fram fer í Heiligendamm í austurhluta Þýskalands.

Meðal helstu mála sem rædd verða á fundi iðríkjanna eru loftlagsbreytingar en ríki Evrópusambandsins hafa þrýst á um nýjan alþjóðasamning um losun gróðurhúsalofttegunda sem getið leyst Kyoto-bókunina af hólmi. Því hafa Bandaríkjamenn verið andsnúnir en þeir hafa ekki enn staðfest Kyoto-samninginn. Þá er líklegt að framtíð Kosovo og staðan í Miðausturlöndum verði einnig rædd.

Enn fremur er mjög líklegt að deilur vegna eldflaugavarnarkerfis Bandaríkjanna í Tékklandi og Póllandi setji svip sinn á fundinn. Valdímír Pútín, forseti Rússlands, lýsti yfir fyrr í vikunni andstöðu við þau áform og hótaði að beina kjarnorkuflaugum Rússa að Evrópu ef áformin gengju eftir. George Bush sagði í gær að Rússar þyrftu ekkert að óttast vegn kerfisins og að Bandaríkjamenn væru ekki andstæðingar Rússa.

Leiðtogum Bretlands og Frakklands, þeim Tony Blair og Nicolas Sarkozy, er ekki skemmt vegna málsins og segjast ætla að eiga opinskáar viðræður við Pútín um hótanir hans.

Blair sagðist enn fremur ætla að ræða við Pútín um morðið á Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnara hjá KGB, en Bretar hafa farið fram á að annar njósnari, Andrei Lugovoj, verði framseldur til Bretlands frá Rússlandi vegna morðsins. Því hafa Rússar hafnað.

Leiðtogafundinum í Þýsklandi lýkur á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×