Erlent

Býður Pútín að vera með

Bandaríkjaforseti segir að Tékkar þurfi ekki að velja á milli Bandaríkjanna og Rússlands, heldur geti verið vinir beggja.
Bandaríkjaforseti segir að Tékkar þurfi ekki að velja á milli Bandaríkjanna og Rússlands, heldur geti verið vinir beggja. MYND/AP

George W. Bush Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn ekki líta á Rússland sem óvinaríki. Þess vegna sé gjörsamlega ástæðulaust af Rússum að óttast fyrirhugaðar eldflaugavarnir Bandaríkjanna í Tékklandi og Póllandi. Þess í stað ættu þeir að vinna saman gegn sameiginlegri ógn og býður Bush Rússum þátttöku í eldflaugavarnakerfinu.

„Rússland er ekki óvinurinn,“ sagði Bush eftir fund með ráðamönnum í Tékklandi, þar sem hann var staddur í gær, og beindi orðum sínum til Vladimírs Pútín Rússlandsforseta.

„Skilaboð mín verða: Vladimír – ég kalla hann Vladimír – þú ættir ekki að óttast eldflaugavarnakerfi okkar. Hvers vegna vinnurðu ekki bara með okkur að eldflaugavarnakerfinu?“

Bush sagðist ætla að hvetja Rússa til að senda bæði herforingja sína og vísindamenn á fund Bandaríkjamanna til að skoða hvernig eldflaugavarnakerfið virkaði.

Skoðanakannanir sýna að yfir sextíu prósent Tékka eru andvíg hugmyndum Bandaríkjaforseta um eldflaugavarnakerfi sem staðsetja á þar í landi og í Póllandi. Hundruð Tékka mótmæltu Bush í fyrradag, en þeir óttast að áætlunin geri Tékkland að skotmarki hryðjuverkamanna.

Bush svaraði því svo, að Tékkar þyrftu ekki að „velja á milli þessa að vera vinir Rússlands eða vinir Bandaríkjanna. Þið getið verið hvort tveggja.“

Um síðustu helgi sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti að Rússar teldu eldflaugavarnarkerfið ógnun við sig. Ógnuninni yrði svarað, til dæmis með því að beina kjarnorkuflaugum Rússlandshers í átt að herstöðvum Bandaríkjamanna í austurhluta Evrópu.

Bush hélt þaðan til Þýskalands á þriggja daga leiðtogafund G8-ríkjanna, sem hefst í Heiligendamm í dag.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×