Erlent

Leggur áherslu á loftslagsmál

Nicolas Sarkozy
Nicolas Sarkozy

Nýkjörinn forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy, segist munu krefja Bandaríkjastjórn um nákvæma áætlun í loftslagsmálum á fundi átta stærstu iðnríkja heims í vikunni.

Forsetinn segir að auk loftslagsmála muni hann setja baráttuna gegn fátækt í Afríku á oddinn á G-8 fundinum. Fundurinn hefst í dag í smábænum Heiligendamm í Þýskalandi.

„Stórþjóð eins og Bandaríkin hefur skyldu til að hefta ekki baráttuna gegn gróðurhúsaáhrifum, heldur þvert á móti leiða hana,“ sagði Sarkozy í sigurræðu sinni að loknum forsetakosningunum 6. maí .




Fleiri fréttir

Sjá meira


×