Erlent

Hótuðu saklausum Dana dauða

Árás drukkins manns á knattspyrnudómara hefur vakið reiði í Danmörku.
Árás drukkins manns á knattspyrnudómara hefur vakið reiði í Danmörku. MYND/AFP

Alsaklaus og grunlaus Dani fékk fjölda morðhótana í sms-skeytum um helgina fyrir að hafa ráðist á dómara í landsleik Dana og Svía í fótbolta. Frá þessu er greint á vefsíðu Ekstra Bladet. Leikurinn var í kjölfarið flautaður af.

Tveir vinir hans hafa nú viðurkennt að hafa logið því að hann hafi verið sá sem réðst á dómarann og bent fjölda manns á símanúmerið hans. Þeir bjuggust þó ekki við þessum viðbrögðum, en eigandi símans þurfti lögregluvernd vegna morðhótananna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×