Erlent

Fær tveggja og hálfs árs dóm

Dómarinn sagðist þurfa að sýna að tekið 
væri af hörku á glæpum í opinberu starfi.
Dómarinn sagðist þurfa að sýna að tekið væri af hörku á glæpum í opinberu starfi. MYND/AP

Lewis „Scooter“ Libby, fyrrverandi ráðgjafi Dicks Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, var í gær dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir meinsæri og hindrun á framgangi réttvísinnar.

Libby var sakfelldur í mars fyrir að ljúga að rannsóknarlögreglumönnum um hvað hann sagði blaðamönnum um CIA-njósnarann Valerie Plame.

Nafni hennar var lekið til fjölmiðla árið 2003 í hefndarskyni fyrir gagnrýni eiginmanns hennar á innrásina í Írak. Enginn hefur verið ákærður fyrir lekann sjálfan.

Lögmenn Libbys báðu dómarann að hafa í huga störf hans fyrir ríkisstjórnina og þátttöku hans í að binda enda á Kalda stríðið og Persaflóastríðið. Vonuðust þeir til að hann slyppi við fangelsisvist.

„Fólk sem gegnir stöðum þar sem þarf að hafa velferð og öryggi þjóðarinnar í öndvegi hefur sérstaka skyldu til að halda sig á mottunni,“ sagði dómarinn sem kvað upp refsinguna.

Libby er hæst setti bandaríski embættismaðurinn til að hljóta dóm fyrir glæp síðan um miðjan níunda áratuginn. Hann heldur fram sakleysi sínu og hyggst áfrýja sakfellingunni.

George Bush Bandaríkjaforseti sagðist vorkenna fjölskyldu Libbys vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×