Erlent

Samgöngur hamla aðstoð

Þúsundir Salómonseyinga þora enn ekki að snúa aftur til þorpa sinna við ströndina vestast í eyjaklasanum sem urðu eyðileggingu að bráð er flóðbylgja af völdum jarðskjálfta skall á þeim í byrjun vikunnar.

Niðurgangur er farinn að ganga milli barna í hópi flóttafólksins, sem hefst við í hlíðunum ofan við þorpin, en illa gengur að koma hjálpargögnum til fólksins vegna skorts og erfiðra samgangna. Honiara, höfuðstaður eyjaklasans þaðan sem megnið af hjálpargögnunum kemur, er í tíu siglingastunda fjarlægð frá hamfarasvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×