Erlent

Nyhedsavisen í góðri sókn

Gunnar Smári og Svenn Dam Bjartsýnir.
Gunnar Smári og Svenn Dam Bjartsýnir. mynd/Jakob Boserup

Nyhedsavisen, sem gefið er út í Danmörku af 365 Media Scandinavia, hefur á undanförnum mánuðum bætt stöðu sína verulega á markaðnum, á sama tíma og önnur blöð hafa þurft að draga saman seglin.

Í Berlingske Tidende er greint frá því að bjartsýni ríki nú meðal aðstandenda Nyhedsavisen á að markmið um markaðshlutdeild og rekstrarforsendur náist. Með sama áframhaldi sé þess jafnvel skammt að bíða að reksturinn standi undir sér, sem hann hefur ekki gert þetta fyrsta hálfa ár síðan blaðið hóf göngu sína. Eftir Gunnari Smára Egilssyni, forstjóra útgáfusjóðsins Dagsbrún Media, er haft að haldi lesendum blaðsins áfram að fjölga með svipuðum hraða og undanfarið sé „vel hugsanlegt að það gerist fyrir árið 2010“ að reksturinn komist yfir núllið. Almennt séð reikni útgefendurnir með að blaðið fari að skila hagnaði á næstu 3-4 árum.

Þá er í Berlingske Tidende einnig sagt frá útrás Dagsbrún Media til Bandaríkjanna. Hún hefst hinn 17. apríl með fríblaðinu „Boston NOW“. Því verður til að byrja með dreift eins og öðrum fríblöðum í borginni, þ.e. á götum og lestarstöðvum. Eftir Gunnari Smára er haft að dagblaðamarkaðurinn vestanhafs sé „fjórum til sex árum á eftir þróuninni í Evrópu“ hvað hlutdeild fríblaða varðar. Þetta skapi sóknarfæri og nú sé fyrirtækið að skoða möguleika á að gefa út slík blöð í tíu öðrum borgum í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×