Erlent

Ekki í mínum bakfirði

Í kanadísku blaði er sagt að íslensk stjórnvöld bjóði álframleiðendum aðgang að ódýrri orku.
Í kanadísku blaði er sagt að íslensk stjórnvöld bjóði álframleiðendum aðgang að ódýrri orku. MYND/Anton

Íbúakosningin í Hafnarfirði um stækkun álversins í Straumsvík hefur vakið athygli víða utan landsteinanna.

Þannig birtir til að mynda kanad­íska blaðið Globe and Mail grein um málið undir fyrirsögninni „Not in my backfjord, Icelanders tell Alcan“ („Íslendingar tjá Alcan: Ekki í mínum bakfirði“), sem er orðaleikur út frá enska orðtakinu „ekki í mínum bakgarði“.

Í greininni er rakið hvernig 50,3 prósent Hafnfirðinga höfnuðu því að „stjórnvöld flyttu þjóðveg og breyttu deiliskipulagi fyrir áformaða stækkun álversins,“ og sagt að margir hefðu lagst gegn stækkuninni af umhverfisástæðum.

Þá er fullyrt að Alcan hafi „fengið vilyrði frá íslensku ríkis­stjórninni um aðgang að ódýrri raforku úr vatnsorkuverum til að knýja nýju verksmiðjuna“. Að íslensk stjórnvöld tíðki að „veita erlendum álfyrirtækjum aðgang að ódýrri orku“ er ítrekað síðar í greininni, þar sem sagt er að miklar deilur hafi nú risið meðal Íslendinga um þá stefnu.

Í fréttaskeyti AP-fréttastofunnar, sem margir fjölmiðlar birtu, ekki síst vestanhafs, segir að úrslit íbúakosninganna „hafi víðtækar afleiðingar bæði fyrir íslenskt efnahagslíf og fyrir Alcan, annan stærsta álframleiðanda heims, sem hafi gefið til kynna að verksmiðjunni kynni að verða lokað“ ef stækkunin yrði ekki að veruleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×