Erlent

26 létust í árásum í Bagdad

Kona stendur á götu í Bagdad þar sem bílasprengja sprakk á sunnudag; sex létust.
Kona stendur á götu í Bagdad þar sem bílasprengja sprakk á sunnudag; sex létust. MYND/AP

26 létust og fjölmargir særðust í nokkrum sprengjuárásum í Bagdad í Írak í gær. Árásirnar urðu víðs vegar um borgina. Talið er að þetta sýni að hryðjuverkamenn geti enn gert árásir í Bagdad. Ofbeldi hefur minnkað í borginni að undanförnu eftir að Bandaríkjaher hóf mikla sókn gegn ofbeldismönnum.

Yfirvöld í Írak sögðu í gær að allt að 130 manns hefðu látist í sprengjuárás í bænum Armili norðan við Bagdad á laugardag. Það er eitt mesta mannfall í einni árás í Írak í marga mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×