Erlent

Enn setið um moskuna

Ættingjar kvenna sem hafast við í Rauðu moskunni í Íslamabad bíða eftir eftir því að fá að hitta þær.
Ættingjar kvenna sem hafast við í Rauðu moskunni í Íslamabad bíða eftir eftir því að fá að hitta þær. MYND/AP

24 hafa látið lífið í umsátri pakistanska hersins í um Rauðu moskuna í miðborg Íslamabad í Pakistan. Herinn hefur setið um moskuna síðan á miðvikudag eftir að hafa lent í skotbardögum við herskáa bókstafstrúarmenn sem hafast við í moskunni á þriðjudag. Pakistanskur hermaður lést í átökum við bókstafstrúarmennina á sunnudag.

Fylgismenn moskunnar vilja innleiða róttæka siðfræði í borginni sem líkist hugmyndafræði Talibana en stjórn Pervez Musharrafs forseta Pakistans er andsnúin því. Leiðtogi moskunnar, Abdul Rashid Ghazi, hefur sagt að hann og menn hans muni frekar láta lífið en að gefast upp. Hann hefur sagt að um 18000 manns séu ennþá inni í moskunni, en ekki hefur verið hægt að staðfesta það.

Það sem heldur aftur af leiðtogum pakistanska hersins er að konur og börn eru enn inni í moskunni og vilja þeir forðast að úthella blóði saklausra borgara. Musharraf forseti sagði á laugardag að Ghazi og menn yrðu allir drepnir ef þeir gæfust ekki upp en ekkert bendir enn til þess að þeir muni gera það.

Trúmálaráðherra Pakistan, Ejaz ul-Haz, segir að fylgismenn moskunnar séu hryðjuverkamenn sem grunaðir eru um alls glæpi, meðal annars að hafa ætlað að myrða forsætisráðherra landsins, Shaukat Aziz.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×