Erlent

Vill bandaríska herinn heim

Pete Domenici vill að Bandaríkjastjórn stefni sendi bandaríska herliðið í Írak heim fyrir næsta vor.
Pete Domenici vill að Bandaríkjastjórn stefni sendi bandaríska herliðið í Írak heim fyrir næsta vor. MYND/AP

Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn og repúblikaninn Pete Domenici vill að Bandaríkjastjórn hætti stríðsrekstri í Írak og sendi herlið sitt aftur heim fyrir næsta vor. Domenici sagði þetta á blaðamannafundi í Nýju-Mexíkó á fimmtudaginn.

Hann er einn af nokkrum repúblikönum og fyrrum stuðningsmönnum Íraksstríðsins sem á síðustu tíu dögum hafa snúið baki við stefnu Bush Bandaríkjaforseta í Írak. Í síðustu viku sögðu tveir öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins, þeir Richard Lugar og George Voinovich, að Bandaríkjastjórn ætti að fækka hermönnum sínum í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×