Erlent

Kjarnavopn ógna heimsbyggðinni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mueller, forstjóri FBI, heldur ræðu á ráðstefnunni
Mueller, forstjóri FBI, heldur ræðu á ráðstefnunni Mynd/ AFP

Öryggissérfræðingar, frá þrjátíu ríkjum víðsvegar úr heiminum, hittust í Miami í Bandaríkjunum í dag til að ræða hryðjuverkaógnina. Robert Mueller, forstjóri FBI, sagði í ræðu að yfirvofandi kjarnorkuhryðjuverk ógnuðu allri heimsbyggðinni. Hann sagði að sporna þyrfti við svartamarkaðsbraski með geislavirk efni. Lögmál framboðs og eftirspurnar leiddu af sér að hættulegir menn gætu nálgast slík efni fyrir rétt verð.

Vladimir Bulavin, forstjóri rússnesku öryggisþjónustunnar, tók í sama streng. Hann sagði að ógnin sem stafaði af kjarnorkuhryðjuverkum væri enn mesta ógn sem ríki heims stæðu andspænis. Hann sagði mikilvægt að hafa eftirlit og góða stjórn á geislavirku efni

Fundur sérfræðinganna mun standa yfir í viku. Þar verða fluttir fyrirlestrar um svartamarkaðsviðskipti með kjarnorkuefni, smyglleiðir og landamæravörslu svo nokkuð sé nefnt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×