Erlent

Sverð Napóleons á 400 milljónir

Sverðið var lýst þjóðargersemi Frakka árið 1978.
Sverðið var lýst þjóðargersemi Frakka árið 1978. MYND/AP

Gullskreytt sverð Napóleons Bónaparte, sem hann notaði í herför á Norður-Ítalíu árið 1800, var í gær selt á uppboði í Frakklandi fyrir 4,8 milljónir evra, sem svarar 408 milljónum króna.

Sverðið kvað vera það síðasta sem Napóleon átti og er enn í höndum einkaaðila. Nafn kaupandans var ekki gefið upp. Seljendur sverðsins voru nokkrir afkomendur Napóleons.

Sverðið var lýst þjóðargersemi Frakka árið 1978, en samkvæmt lögum þar að lútandi er heimilt að selja gripinn erlendum kaupanda, að því gefnu að hann sé minnst fimm mánuði á ári í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×