Erlent

George Bush tekið sem hetju í Albaníu

Tiranabúar troðast til að heilsa Bandaríkjaforseta í gær.
Tiranabúar troðast til að heilsa Bandaríkjaforseta í gær. MYND/AP

George W. Bush var fagnað sem hetju í fyrstu heimsókn Bandaríkjaforseta til Albaníu í gær. Í Tirana sagði hann að það gengi ekki að ræða út í það óendanlega um sjálfstæði Kosovo-héraðs, sem enn tilheyrir formlega Serbíu en hinn albanski meirihluti íbúanna vill að fái sjálfstæði sem fyrst.

„Á einhverjum tímapunkti - frekar fyrr en síðar - verður að segja: „Hingað og ekki lengra. Kosovo er sjálfstætt“ og það er sú afstaða sem við höfum tekið,“ sagði Bush á blaðamannafundi með albanska forsætisráðherranum Sali Berisha.

Kall Bush eftir sjálfstæði Kosovo var beint að ráðamönnum í Rússlandi og öðrum löndum sem eru andsnúin áformum um aðskilnað Kosovo frá Serbíu.

Um viðleitni Albaníustjórnar til að fá inngöngu í Atlantshafsbandalagið sagði Bush að frekari pólitískar og hernaðarlegar umbætur væru nauðsynlegar áður en hún gæti komið til greina. Leiðtogar Albaníu sögðust hafa skilning á því.

„Við eru ákveðnir í að taka hverja þá ákvörðun, setja hver þau lög, grípa til hverra þeirra umbóta sem myndu gera Albaníu tæka í bandalagið,“ sagði Berisha.

Bush sat einnig hádegisverðarfund með forsætisráðherrum Albaníu, Makedoníu og Króatíu, en síðastnefnda landið vonast til að fá inngöngu í NATO á næsta ári.

Að lokinni Albaníuheimsókninni flaug Bush til Sofíu, höfuðborgar Búlgaríu, sem er síðasti viðkomustaður hans í Evrópu eftir G-8-fundinn í Þýskalandi, en í ferðinni heimsótti hann sex lönd á átta dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×