George Bush tekið sem hetju í Albaníu 11. júní 2007 05:15 Tiranabúar troðast til að heilsa Bandaríkjaforseta í gær. MYND/AP
George W. Bush var fagnað sem hetju í fyrstu heimsókn Bandaríkjaforseta til Albaníu í gær. Í Tirana sagði hann að það gengi ekki að ræða út í það óendanlega um sjálfstæði Kosovo-héraðs, sem enn tilheyrir formlega Serbíu en hinn albanski meirihluti íbúanna vill að fái sjálfstæði sem fyrst. „Á einhverjum tímapunkti - frekar fyrr en síðar - verður að segja: „Hingað og ekki lengra. Kosovo er sjálfstætt“ og það er sú afstaða sem við höfum tekið,“ sagði Bush á blaðamannafundi með albanska forsætisráðherranum Sali Berisha. Kall Bush eftir sjálfstæði Kosovo var beint að ráðamönnum í Rússlandi og öðrum löndum sem eru andsnúin áformum um aðskilnað Kosovo frá Serbíu. Um viðleitni Albaníustjórnar til að fá inngöngu í Atlantshafsbandalagið sagði Bush að frekari pólitískar og hernaðarlegar umbætur væru nauðsynlegar áður en hún gæti komið til greina. Leiðtogar Albaníu sögðust hafa skilning á því. „Við eru ákveðnir í að taka hverja þá ákvörðun, setja hver þau lög, grípa til hverra þeirra umbóta sem myndu gera Albaníu tæka í bandalagið,“ sagði Berisha. Bush sat einnig hádegisverðarfund með forsætisráðherrum Albaníu, Makedoníu og Króatíu, en síðastnefnda landið vonast til að fá inngöngu í NATO á næsta ári. Að lokinni Albaníuheimsókninni flaug Bush til Sofíu, höfuðborgar Búlgaríu, sem er síðasti viðkomustaður hans í Evrópu eftir G-8-fundinn í Þýskalandi, en í ferðinni heimsótti hann sex lönd á átta dögum.
Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Innlent Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Innlent Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Innlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Sjá meira