Erlent

ETA sigldi í öngstræti

Zapatero, ætlar að taka hart á ofbeldisverkum ETA.
Zapatero, ætlar að taka hart á ofbeldisverkum ETA.

Jose Luis Rodriguez Zapatero, forseti Spánar segist taka harða afstöðu gagnvart ETA, aðskilnaðarhreyfingu Baska. Hann segir að samtökin hafi siglt inn í öngstræti þegar þeir sviku vopnahlé í síðustu viku.

 

Á fjörutíu árum hefur frelsisbarátta ETA kostað 800 manns lífið. Í júní í fyrra, þremur mánuðum eftir að ETA tilkynnti um vopnahlé, sagði Zapatero að hann myndi byrja á friðarviðræðum við ETA. Friðarferlið var stöðvað eftir að samtökin lýstu yfir ábyrgð á sprengingum á bílastæði við Madrídarflugvöll í lok desember á síðasta ári. Sprengingin varð tveimur mönnum að bana. Þetta var fyrsta mannskæða árás ETA í þrjú ár.

Zapatero hefur ákveðið að herða afstöðu sína gagnvart ETA eftir að þeir sviku vopnahléið aftur fyrir réttri viku síðan. Í síðustu viku færði spænska lögreglan Jose Ignacio de Juana Chaos, vel þekktan ETA meðlim í fangelsi. Þeir handtóku jafnframt Arnaldo Otegi, leiðtoga Batasuna, pólítíska arms ETA samtakanna. Frá lokum vopnahlésins hafa ETA meðlimir jafnframt verið handteknir í Frakklandi, Mexíkó og Kanada




Fleiri fréttir

Sjá meira


×