Beck birtir breiðsíðu ásakana 13. júní 2007 03:45 Formaður þýska Jafnaðarmannaflokksins. Fréttablaðið/AP
Eftir að hafa baðað sig í kastljósi heimsfjölmiðlanna sem gestgjafi leiðtogafundar G-8-hóps mestu iðnríkja heims þarf Angela Merkel, kanslari Þýskalands, nú að hafa sig alla við til að tryggja friðinn á stjórnarheimilinu í Berlín. Brestunum virðist nú fjölga stöðugt í „hagkvæmnishjónabandi“ Kristilega demókrataflokksins, sem Merkel fer fyrir, og jafnaðarmanna sem komst á eftir kosningarnar haustið 2005. Kurt Beck, formaður Jafnaðarmannaflokksins, birti í gær mikla breiðsíðu pólitískra ásakana í garð ríkisstjórnarsamstarfsflokksins á heilli síðu í hinu annars íhaldssama dagblaði Frankfurter Allgemeine Zeitung. Í greininni sakar Beck kristilega demókrata um „nýfrjálshyggju“ eða of mikla áherslu á markaðslausnir á kostnað félagslegs jöfnuðar. „Það er furðulegt hve lítil stjórnmálareynsla endurspeglast í draumnum um „báknið burt“,“ skrifar hann. „Ef kristilegir demókratar tækju sjálfa sig á orðinu yrði útkoman minni menntun, minni fjárfestingar og minna réttaröryggi.“ Beck, sem fer fyrir stjórn sambandslandsins Rheinland-Pfalz, á ekki sæti í sambandsríkisstjórninni og hefur þannig fríara spil til gagnrýni en annars væri. Volker Kauder, þingflokksformaður kristilegra demókrata í Sambandsþinginu, lét sér gagnrýni Becks þó í léttu rúmi liggja og sagði flokkinn staðráðinn í að halda stjórnarsamstarfinu áfram til loka kjörtímabilsins árið 2009.
Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Khamenei látinn Erlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Innlent Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Innlent Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Innlent Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Innlent Fleiri fréttir Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Sjá meira