Erlent

Véfengir stefnu gegn hryðjuverkum

Sérlög um dómstóla voru sett í október eftir að hæstiréttur úrskurðaði að fyrri dómstólar brytu í bága við bandarísk lög og alþjóðlega mannréttindasamninga.
nordicphotos/afp
Sérlög um dómstóla voru sett í október eftir að hæstiréttur úrskurðaði að fyrri dómstólar brytu í bága við bandarísk lög og alþjóðlega mannréttindasamninga. nordicphotos/afp

Stefna bandarískra stjórnvalda í baráttunni við hryðjuverk fékk áfellisdóm í úrskurði þriggja dómara áfrýjunardómstóls í gær þar sem sagði að ekki mætti halda bandarískum ríkisborgurum í óákveðinn tíma sem meintum „óvinveittum bardagamönnum“ án ákæru.



Ali al-Marri er eini bandaríski ríkisborgarinn sem er í haldi í Bandaríkjunum grunaður um að vera „óvinveittur bardagamaður.“ Í úrskurðinum segir að stjórnvöldum beri að annaðhvort ákæra hann eða að sleppa úr haldi og að sérlög um herdómstóla, sem sett voru í fyrra, svipti al-Marri ekki stjórnarskrárbundnum réttindum sínum til að véfengja þá sem hafa hann í haldi fyrir dómstólum. „Í einföldu máli þá leyfir stjórnarskráin ekki að forsetinn geti fyrirskipað hernum að handtaka borgara sem búa í Bandaríkjunum og halda þeim síðan um óákveðinn tíma án málsmeðferðar, og þetta á við jafnvel þótt þeir séu skilgreindir sem „óvinveittir bardagamenn.“



Dómsmálaráðuneytið hyggst áfrýja þessum úrskurði að sögn talsmanns ráðuneytisins, Dean Boyd. „Forsetinn hefur gert ljóst að hann ætlar sér að nota öll möguleg tæki til að vernda Bandaríkjamenn frá frekari árásum frá al-Kaída, þar á meðal að handtaka og halda al-Kaída-liðum sem koma inn í landið.“



Þessi úrskurður bætist í fjölda annarra sem fallið hafa undanfarið gegn stefnu bandarískra stjórnvalda í baráttunni við hryðjuverk. Talið er að þetta tiltekna mál geti hjálpað til við að skilgreina hversu mikið vald stjórnvöld hafa til að hafa grunaða hryðjuverkamenn í haldi í óákveðinn tíma og án réttar til að véfengja lögmæti þess að þeim sé haldið föngnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×