Erlent

Hundruð morða á samviskunni

Martic sýndi engin svipbrigði þegar dómurinn yfir honum var lesinn.
nordicphotos/afp
Martic sýndi engin svipbrigði þegar dómurinn yfir honum var lesinn. nordicphotos/afp

 Fyrrum leiðtogi serbneskra uppreisnarmanna í Króatíu var í gær sakfelldur af stríðsglæpadómstólnum í Haag og dæmdur í 35 ára fangelsi fyrir morð, pyntingar og ofsóknir.



Dómararnir þrír sögðu Milan Martic ábyrgan fyrir hundruðum morða frá árinu 1991 þegar Serbar í Krajina-héraði í Króatíu gerðu uppreisn og ofsóttu þá sem voru ekki Serbar.



Dómararnir sögðu Martic hafa verið í nánu samstarfi við aðra serbneska leiðtoga með það sameiginlega markmið að skapa hreinræktað ríki Serbíu þegar Júgóslavía liðaðist í sundur sem þriðjungur Króatíu átti að tilheyra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×