Erlent

Hlustaði á tónlist í dómsal

Kona, sem sat í kviðdómi í morðmáli í London, á yfir höfði sér fangelsisdóm eftir að hún varð uppvís að því að hlusta á tónlist á meðan á réttarhöldunum stóð.

Hún var handtekin og vísað úr kviðdómnum. Konan var sökuð um að nota slæðu til að hylja heyrnartól tengd við MP3-spilara. Með þessu gat hún sleppt því að hlusta á framburð sakborningsins, sem er gert að sök að hafa barið hreyfihamlaða konu sína til bana.



Konan hafði áður reynt að komast hjá því að sitja í kviðdómi, að sögn dagblaðsins The Sun. Í það skipti sagðist hún vera með tannpínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×