Erlent

Kona varð óvart sendiherra

Bandarísk kona fékk hátt í hundrað símtöl á dag frá óttaslegnum Víetnömum, þegar farsímanúmerið hennar var óvart skráð sem neyðarsími víetnamska se-ndiráðsins.



Konan, sem er 55 ára, fékk farsíma í jólagjöf frá dóttur sinn. Fljótlega fóru símtölin að streyma inn. Það tók konuna sex mánuði að komast til botns í málinu. „Fólkið sagðist þurfa vegabréf og sagðist hafa sent inn beiðnir og jafnvel peninga,“ sagði konan. „Sumir áttu pantað far til Víetnam og fylltust örvæntingar yfir að komast ekki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×