Miklar efasemdir í ráðherraliði Blairs 10. júlí 2007 03:00 Bókin sem rætt er um í Bretlandi þessa dagana.
Ráðherrar í ríkisstjórn Tonys Blair höfðu á sínum tíma miklar efasemdir um réttmæti þess að ráðast á Írak. Þetta fullyrðir Alastair Campbell, fyrrverandi blaðafulltrúi Blairs, í dagbókum sínum sem komu út á bók í gær. „Við höfðum öll, held ég, á stundum miklar efasemdir en hann virtist engar hafa, eða hélt þeim að minnsta kosti vel leyndum, jafnvel fyrir okkur,“ skrifaði Campbell í dagbók sína 18. mars árið 2003, sama daginn og breska þingið féllst á að breski herinn tæki þátt í innrásinni. Mikið gekk á í liði Blairs á þessum tíma og á ríkisstjórnarfundi daginn áður en þingið hófst virtust þeir John Prescott aðstoðarforsætisráðherra og John Reid, formaður Verkamannaflokksins, hreinlega orðnir líkamlega veikir, að því er Campbell skrifar. Reid varaði Blair við því að fara út í þessar umdeildu hernaðaraðgerðir: „Gerðir okkar verða dæmdar af því þjóðfélagi sem tekur við af Saddam í Írak,“ segir í dagbók Campbells. Dagbækur Campbells varpa nýju ljósi á þennan tíma, þótt áður hafi verið ljóst að ákvörðunin um að ráðast inn í Írak hafi verið afar umdeild innan bresku stjórnarinnar. Campbell var stjórnmálaritstjóri hjá dagblaðinu The Daily Mirror, en sagði af sér til að vinna fyrir Blair, sem þremur árum síðar leiddi Verkamannaflokkinn til sigurs í þingkosningum. Blair gerði Campbell að helsta fjölmiðlafulltrúa sínum, og Campbell varð fljótt alræmdur sem einn helsti „spunameistari“ bresku stjórnarinnar, og þótt víðar væri leitað. Hann lagði mikla vinnu í að hafa áhrif á allan fréttaflutning af verkum ríkisstjórnarinnar, reyndi jafnan að draga fram jákvæðu hliðarnar og snúa vopnin úr höndum gagnrýnenda með öllum tiltækum ráðum. Campbell sagði af sér árið 2003 í kjölfar rannsóknar á dauða vopnasérfræðingsins Davids Kelly, sem framdi sjálfsvíg eftir að upp komst að hann var heimildarmaður bresku fréttastofunnar BBC, þar sem stjórn Blairs var sökuð um að krydda og ýkja upplýsingar frá leyniþjónustunni til að réttlæta innrás í Írak. Rannsóknin leiddi í ljós að Campbell hafði ekki gerst sekur um neitt misjafnt í tengslum við lát Kellys, en hann sagði engu að síður af sér og segir nú að þessi tími hafi verið sá versti í lífi sínu: „Ég var þátttakandi í atburðarás sem varð til þess að maður tók þá ákvörðun að svipta sig lífi,“ sagði Campbell í viðtali við BBC.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Fleiri fréttir Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Sjá meira