Erlent

Umræður en ekki innrás

Skriðdreki skýtur táragasi að Rauðu moskunni í Íslamabad.
Skriðdreki skýtur táragasi að Rauðu moskunni í Íslamabad. fréttablaðið/ap

Pervez Musharraf, forseti Pakistans, ákvað í gær að senda hóp manna til að reyna að semja við meinta hryðjuverkamenn sem hafast við í Rauðu moskunni í Íslamabad. Jafnvel var talið að forsetinn myndi gera allsherjarárás á moskuna.



Pakistanski herinn hefur setið um moskuna í viku og hafa 24 látið lífið í átökum.



Ekki liggur fyrir hvaða skilmála sendinefnd Musharraf mun bjóða hinum meintu hryðjuverkamönnum. Talið er að 150 gíslar séu inni í moskunni. Leiðtogi hinna meintu hryðjuverkamanna í moskunni hefur sagt að þeir muni frekar deyja en gefast upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×