Erlent

Grunaður um að vera njósnari

Rússneskur maður sem grunaður er um njósnir er í haldi austurrískra yfirvalda. Hann var tekinn höndum síðastliðið mánudagskvöld.

Talsmaður ríkissaksóknara í Austurríki, Gerhard Jarosch, segir að maðurinn liggi undir grun um að hafa móttekið viðkvæmar upplýsingar frá manni innan austurríska hersins. Sá hefur einnig verið handtekinn og settur í varðhald.

Rússneska fréttastofan ITAR-Tass greindi frá því að Rússinn væri meðlimur opinberrar rússneskar sendinefndar sem tekur þátt í ráðstefnu um geimferðir sem stendur yfir í Vín. Rússneska geimferðastofnunin staðfesti í samtali við fjölmiðla að maðurinn væri starfsmaður hjá stofnuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×