Erlent

Turnar Gullnu-mosku sprengdir

pílagrímar við askariya-moskuna. Bænaturnarnir sitthvoru megin við gullna þakhvelfingu moskunnar voru sprengdir.
pílagrímar við askariya-moskuna. Bænaturnarnir sitthvoru megin við gullna þakhvelfingu moskunnar voru sprengdir. MYND/AP

Tveir bænaturnar við hina fornu Askariya-mosku í bænum Samarra í Írak voru eyðilagðir í sprengjuárás á miðvikudag. Ekkert mannfall varð í árásinni, sem herskáum súnníum var kennt um.

Árás var gerð á sömu mosku í fyrra og í kjölfarið fylgdi mikil ofbeldisalda. Askariya-moskan er einn mesti helgidómur sjía sem dregur að fjölda pílagríma árlega.

Forsætisráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, fyrirskipaði strax bann við umferð ökutækja og fjöldafundum til að reyna að koma í veg fyrir frekara ofbeldi. Einnig óskaði hann eftir liðsauka frá Bandaríkjaher til Samarra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×