Erlent

Shimon Peres forseti Ísraels

Eftir að Peres fékk meirihluta atkvæða í fyrstu umferð atkvæðagreiðslunnar drógu keppinautarnir framboð sín til baka.
Eftir að Peres fékk meirihluta atkvæða í fyrstu umferð atkvæðagreiðslunnar drógu keppinautarnir framboð sín til baka. MYND/AFP

Shimon Peres var í gær kjörinn forseti Ísraels af þjóðþingi landsins. Stjórnmálaferill Peres, sem er 83 ára gamall, spannar sex áratugi og verður hann níræður þegar kjörtímabili hans lýkur.

Tveir keppinautar Peres drógu framboð sín til baka fyrr um daginn eftir að hann tók afgerandi forystu í fyrstu umferð. Peres var því einn í næstu umferð og hlaut stuðning 86 þingmanna af þeim 120 sem eiga sæti á þingi.

Peres, sem bauð sig einnig fram árið 2000, þótti þá sigurstranglegur en beið lægri hlut fyrir Moshe Katsav. Styr hefur staðið um Katsav undanfarið vegna ásakana um að hafa áreitt fjórar konur kynferðislega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×