Erlent

Segja Írana útvega talibönum vopn

Írönsk stjórnvöld segja ásakanir um að þau sjái talibönum fyrir vopnum tilhæfulausar.
Írönsk stjórnvöld segja ásakanir um að þau sjái talibönum fyrir vopnum tilhæfulausar. MYND/AP

Bandarísk stjórnvöld hafa „óhrekjanlegar“ sannanir fyrir því að Íranar flytja vopn til talibana í Afganistan með vitneskju íranskra stjórnvalda að sögn háttsetts bandarísks erindreka sem segir að Atlantshafsbandalagið (NATÓ) hafi hindrað nokkra slíka flutninga.

Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, staðfesti þetta í samtali við AP fréttastofuna og sagði að NATÓ þyrfti að beita sér fyrir því að stöðva þessa flutninga.

Burns sagði ekkert um umfang vopnaflutninganna en gaf í skyn að þeir hefðu ekki mikil áhrif á átökin í Afganistan. „Ég tel ekki að þeir skipti sköpum gagnvart okkur en þeir skapa vanda, þetta er ólöglegt samkvæmt alþjóðalögum ... og Íranar verða að hætta þessu.“

Mikið hefur verið deilt um hvort stjórnvöld í Íran séu að aðstoða uppreisnarmenn í Írak og í síðasta mánuði sökuðu stjórnvöld nokkurra ríkja á Vesturlöndum og við Persaflóa Íran um leynilegan stuðning við talibana í Afganistan. Írönsk stjórnvöld neita því að þau styðji talibana og segja slíkan málflutning hluta af rógsherferð gegn sér.

Bandarískur hershöfðingi, Dan McNeill, segir talibana hafa sýnt merki um betri þjálfun í átökum undanfarið og þeir noti bardagatækni í líkingu við „háþróaðan vestrænan her.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×