Erlent

Engin merki um þíðu

Sergei Lavrov. Rússneski utanríkisráðherrann ásamt Carl Bildt í Malmö í gær.
Sergei Lavrov. Rússneski utanríkisráðherrann ásamt Carl Bildt í Malmö í gær. MYND/AP

Utanríkisráðherrar Eistlands og Rússlands, Urmas Paet og Sergei Lavrov, hittust á ráðherrafundi Eystrasaltsríkja í Malmö í Svíþjóð í gær. Þetta var fyrsti fundur háttsettra fulltrúa beggja landa síðan samskipti grannríkjanna hrukku í algjöran baklás í vor vegna sovésks minnismerkis sem eistnesk stjórnvöld létu flytja frá miðborg Tallinn inn í hermannakirkjugarð.

„Ég tel að það sé 90 prósent undir Rússum komið (að bæta samskiptin). Við erum mjög opnir fyrir lausnum,“ sagði Paet eftir fundinn. Lavrov sagði að Rússar reyndu að eiga vinsamleg samskipti við allar grannþjóðir sínar, en bætti við að „við eigum í vandræðum með Eistland“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×