Erlent

Stjórnarmyndun á Írlandi

Samningamenn Græningjaflokksins á Írlandi greindu í gær frá því að þeir byggjust við því að mynda ríkisstjórn í þessari viku ásamt FiAnna Fail, flokki Bertie Ahern forsætisráðherra. Flokkarnir hafa átt í viðræðum undanfarna viku.



Fienna Fail fékk flest atkvæði í kosningunum 24. maí en skorti fimm sæti upp á þingmeirihluta. Græningjaflokkurinn hlaut sex þingsæti.

Græningjaflokkurinn, sem er umhverfissinnaður flokkur, hefur aldrei fyrr komið að stjórnarmyndun á Írlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×