Erlent

Fannst læst inni í lítilli kompu

Danielle Cramer
Nordicphotos/AFP
Danielle Cramer Nordicphotos/AFP

Hin fimmtán ára gamla Danielle Cramer fannst föl og veikburða í litlu leyniherbergi fyrir um tveimur vikum, eftir árs leit. Kunningi foreldra hennar hafði haldið henni fanginni á heimili sínu síðan í júní í fyrra.



Lögreglan fann Danielle við húsleit í örsmáu herbergi undir stiga, sem falið var bak við kommóðu. Í húsinu búa hjón, ung kona og fimmtán ára drengur. Hjónin og konan voru handtekin, en drengurinn afhentur barnaverndarstofnun.



Vitað er að Cramer hafi þekkt húsbóndann og lögreglu grunar að hún hafi leitað hælis hjá honum þegar hún hljópst að heiman fyrir ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×