Erlent

Vilja ræða mannréttindabrot Kína

Sænsk yfirvöld munu ekki veigra sér við að ræða slæma frammistöðu Kínverja í mannréttindamálum við Hu Jintao Kínaforseta. Þetta var haft Carl Bildt utanríkisráðherra í gær. Kínaforseti heimsækir Svíþjóð um helgina ásamt sendinefnd.

„Mannréttindi verða örugglega umræðuefni þegar við tölum um innanríkismál Kína,“ sagði Bildt.

Koma Hu er fyrsta heimsókn kínversks þjóðhöfðingja til Svíþjóðar, en ríkisstjórn landsins hefur gagnrýnt mannréttindabrot Kínastjórnar opinberlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×