Fangelsi með vitund ráðamanna 9. júní 2007 06:30 Svissneski þingmaðurinn hefur verið iðinn við að rannsaka leynileg fangelsi CIA í Evrópu. MYND/AP
Svissneski stjórnmálamaðurinn Dick Marty fullyrðir, í nýrri skýrslu sem hann vann fyrir Evrópuráðið, að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi starfrækt leynileg fangelsi í Póllandi og Rúmeníu á árunum 2003 til 2005. Hann segir fangelsin hafa verið starfrækt með fullri vitund ráðamanna. Auk þess sakar hann bæði ítölsk og þýsk stjórnvöld um að torvelda honum rannsóknir sínar á leynifangelsum CIA í Evrópu og leynilegan flutning fanga milli landa. Í skýrslu Martys er því meðal annars haldið fram að bæði Abu Zubaydah og Khalid Sheikh Muhammed, sem síðastliðið haust voru fluttir til Guantanamo á Kúbu, hafi verið hafðir í haldi í Póllandi og þar hafi Bandaríkjamenn yfirheyrt þá. Pólsk og rúmensk stjórnvöld segja ekkert hæft í ásökunum Martys. Thomas Steg, talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar, hafnar sömuleiðis alfarið ásökunum um að stjórnin hafi gert Marty erfitt fyrir. Skýrslan var lögð fram á Evrópuráðsþinginu í gær. Þingmenn fá skýrsluna nú til meðferðar og afgreiða endanlega gerð hennar með atkvæðagreiðslu í lok júní. Í skýrslunni eru býsna nákvæmar lýsingar á slæmri meðferð sem fangarnir máttu þola. Upplýsingarnar eru sagðar fengnar frá föngum, bæði fyrrverandi og núverandi, mannréttindasamtökum og fólki sem hefur starfað í fangelsunum.
Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Innlent Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Innlent Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Innlent „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ Innlent Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Innlent Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Innlent Fleiri fréttir Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Sjá meira