Erlent

Segist tilbúinn að skila Gólan

Ehud Olmert
Ehud Olmert

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur sagt sýrlenskum yfirvöldum að hann sé tilbúinn að skila Gólan-hæðum. Þetta kom fram í umfjöllun ísraelska blaðsins Yediot í gær.

Forseti Sýrlands, Bashar Assad, hefur ekki svarað tillögu Olmerts. Ísrael hertók hæðirnar í Sex daga stríðinu 1967, en segist munu skila þeim ef sýrlensk stjórnvöld minnka tengsl sín við ríkisstjórn Írans og hætta stuðningi við líbanska og palestínska hryðjuverkahópa.

Gólan-hæðir voru innlimaðar í Ísraelsríki árið 1981.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×