Erlent

Gegn Kúrdum í Norður-Írak

Tyrknesk stórskotalið sprengdu skotmörk innan landamæra Írak, þar sem talið var að uppreisnarmenn úr röðum Kúrda héldu til. Leiðtogar Kúrda í Írak og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, vöruðu Tyrki við að ýta undir ólgu á svæðinu með aðgerðunum.

Ráðherrann sagði að hvorki væri gott fyrir Tyrkland né Írak að hefja meiriháttar árás á Kúrda í Norður-Írak. Fjórir tyrkneskir hermenn fórust í sprengingu við veg rétt norðan við landamærin í fyrrdag. Uppreisnarmönnum var kennt um árásina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×