Erlent

Ólympíumynd veldur flogum

Merki Ólympíuleikanna 2012 Merkið er alsaklaust.
Merki Ólympíuleikanna 2012 Merkið er alsaklaust.

Kynningarmyndband fyrir merki Ólympíuleikana sem haldnir verða í London árið 2012 hefur verið fjarlægt af vefnum. Í ljós kom að myndbandið hefur valdið því að sumir áhorfendur fá flogaköst af því að berja það augum.

Samtök flogaveikra fengu símtöl frá fólki sem hafði fengið flogakast við að horfa á myndbandið. Myndbrot sem sýnir sundkappa dýfa sér í laug er talið vera sökudólgurinn.

Talsmenn Ólympíuleikanna vildu vekja athygli á því að sjálft merki Ólympíuleikanna hefði ekki valdið köstunum.

Myndbandið verður klippt upp á nýtt og myndbrotið fjarlægt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×