Erlent

ETA aflýsir vopnahléinu

Basknesku aðskilnaðarsamtökin ETA á Spáni lýstu því yfir í gær að vopnahléinu sem komið var á fyrir ári væri aflýst.

Í yfirlýsingunni, sem birtist í tveimur baskneskum dagblöðum, stóð að vopnahléinu lyki á miðnætti og samfélag Baska yrði varið með öllum tiltækum ráðum.

Ríkisstjórninni væri um misheppnað friðarferli að kenna.Endalok vopnahlésins vofðu yfir í lok síðasta árs þegar samtökin sprengdu bílastæðahús við flugvöll í Madríd. Tvennt fórst í árásinni.

Ágreiningur ETA við stjórnvöld hefur staðið í um fjörutíu ár og valdið dauða yfir 800 manns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×