Erlent

Vítisenglar með góðgerðaveislu

Amsterdam-deild bifhjólasamtakanna Hells Angels, eða Vítisengla, hélt í gærkvöldi góðgerðaveislu til þess að safna fé fyrir lögfræðikostnaði.

Samtökin eiga í málaferlum um allt Holland þar sem saksóknarar vilja banna mismunandi deildir þeirra. „Við þurfum ykkar hjálp,“ sagði á boðskortinu sem birtist á vefsíðu samtakanna. Þetta kom fram á fréttavef Reuters.

Í upphafi árs 2002 voru tuttugu danskir meðlimir samtakanna stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli og þeim meinuð landganga, af ótta við ofbeldisverk.

Vítisenglar eru meðal alræmdustu glæpasamtaka í Norður-Evrópu, og hafa meðlimir þeirra meðal annars verið dæmdir fyrir eiturlyfjasölu og ofbeldisglæpi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×