Erlent

Á þriðja tug látnir eftir flóð

Í það minnsta tuttugu og einn lést og fjölmargra er saknað eftir að flæddi yfir Sairung og Prai fossana í suðurhluta Taílands í gær. Talið er að um tvö hundruð manns hafi verið við fossana þegar flóðið gekk yfir, margir á sundi í ánni.

Þriggja daga samfelld rigningartíð á svæðinu kom flóðunum af stað, samkvæmt fulltrúa neyðarvarnamiðstöðvar Taílands. Óttast er að tala látinna muni hækka þegar fram líður.

Óvenju margir voru á svæðinu í gær þar sem Taílendingar fagna nýju ári með ferðalögum út á land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×